Sæl öll!! vonandi beið enginn eftir fréttum!!?? Síðasti túr gekk með ágætum og þessi hefur gengið all-vel, smá brælur af og til en ekkert til að fárast yfir á þessum árstíma og búin að vera blíða í 4 mánuði þar áður.  Byrjuðum á Héraðsflóa en færðum okkur fljótlega austar ca 90 -100 sm frá landinu, skruppum að vísu aftur í Héraðsflóann og fengum 50 tonn eftir 3 tíma en kallinn vildi frekari félags-skap og færðum við okkur Allir!!! ekki bara skipstjórinn austur á 100 mílurnar aftur, þar var jú ágæt veiði oftar en  ekki og fengum við góð 200 tonn í hali´upp úr síðasta miðnætti, kvikuslampandi og stinningskaldi  en erum á hægu róli í átt til lands, stefnt að löndun n.k. föstudag.  Frosin núna 420 tonn ca.             Þá eru nú blessaðir þingfurstarnir komnir í vinnuna aftur, með tilheyrandi messu og eggja-hríðar göngu,  held þeir hefðu bara átt að taka hlé þessa daga sem liðu frá síðasta fundi í þinginu, þeir ætluðu jú aldrei að geta slitið sig frá þeirri samkomu og hefðu svo getað mætt aftur án þess að kalla út fjölmennt lögreglulið,það kostar sitt!! og alla tunnuslagarana og sparnaður hefði orðið í eggjum og jafnvel fleiru matarkins sem gaukað var að þeim, hefðu ekki einu sinni þurft í messu fyrst!! en kanske  fengu þeir fyrirgefningu syndanna  með þessu móti. hefur líkast til ekki veitt af að hreinsa til á listanum hjá þeim. Skólarnir fara í jólafrí og vetrarfrí en það þarf ekki að setja þá aftur eftir 10 dag eða tveggja  vikna hlé með viðhöfn, og talsvert er áhugaverðara og uppbyggilegra  sem þar fer fram heldur en  það sem GAP-uxarnir láta sér um munn fara á ræðustól Alþingis oft á tíðum. Frú Nordal hefur líklega ekkert frétt af virkjunum sem eru rétt að fara í gang og aðrar virkjanaframkvæmdir sem í gangi eru, en það var ferskt í hennar huga að virkjun í neðri hluta Þjórsár var ekki komin á skrið!! Sigmundur Davíð talaði hátt og skírt að vanda en lítið sem kall-anginn getur staðið við, gæti trúað að hann væri bestur þegar hann sefur!!??..  Hlustaði á Steingrím í gærmorgun á rás 2 þar sem hann útskýrði hvað við værum lánsöm að skattar og álögur + niðurskurður væru miklu vægari en það sem helltist yfir okkur á síðasta ári, þetta hljómaði líkt og gengið væri útfrá stöðunni eins og hún var áður en 2010 hækkanirnar gengu í garð,  mér fannst að fréttahaukarnir hefðu mátt benda honum á að þessar auknu álögur núna koma ofan á allt sem áður var lagt á landsmenn,..    Aftur að síldveiðinni, við erum jafnvel í næst síðasta túr á norsk-Íslensku síldina í haust,, og ágætt ef veiðin helst ekki fjær en 100 sm frá austfjörðum, sem lengst í haust.  Smá skot á brúar-kallana*** þeir tala gjarnan í síma og talstöð sem er mjög eðlilegt, en það er nær undantekningarlaust að þeir segja,, ég er kominn með 13000 kassa* ég færði mig austar ** ég ætla að kasta fljótlega og Ég ætla að landa n.k. föstudag,  við erum 24 um borð, kanske eru þeir ekki góðir í fleirtölu???????
Maður ætti aldrei að vera hræddur við að spyrja kjánalegra spurninga, það er þó betra en kjánaleg mistök
Kv / Seán
Sæl gott fólk, lönduðum s.l. sunnudag aðeins slakri frystilest, þ.e.a.s. í hana vantaði nokkur tonn, svo full væri, fáein tonn fóru í bræðsluna, makrílhausar. Höfum svo haldið okkur á Héraðsflóa það sem af er veiðiferðinni og veiðin gengið ágætlega, byrjuðum með 50 tonn en hefur svo verið 140 til 160 tonn í hali síðan, og ekki höfum við verið langt frá landi, upp að 12 sjómílna mörkum og  svo aðeins utar líka, fjallasýn flesta daga, sem er ekki vanalegt við veiðar á norsk-Íslensku síldinni. Veðrið hefur heldur ekki plagað okkur, hægviðri flesta daga það sem af er og ekki í spánni að hann verði hastur næstu daga.   Talsvert líf er í fótboltabullunum okkar hér um borð, erlendu úrslitin að mestu eftir þeirra óskum nema skipstjórinn var óhress með liðskipan man-united  í síðasta meistaraleik en enska drollan er búin að aðla Ferguson  en ekki Gauja svo hann verður að ráða meiru hvort svo viskan er nokkuð meiri??!!!  Fjandi skítt að ÍBV skildu ekki hreinsa sebrana af sér í síðasta leik . óvíst að þeir fái annað betra færi á þeim á tímabilinu, þó er enn smá von að þeir svart-hvítu misstígi sig!? umfram að tapa í eyjum næsta leik. Jæja erum held ég að gæla við að landa n.k. mánudag, allavega horfurnar allgóðar.
Kv / Seán
Kjörorð boltaBullunnar;  Það er miklu auðveldar að vera gagnrýninn en að vera réttvís.
Blessuð og sæl gott fólk!  ég ætla ekki að rekja söguna frá  síðustu færslu, en sá vel ritandi Múffi tjónaði á sér þumalfingur í lok síðasta túrs og fór þar af leiðandi ekki alheill í frí en er vonandi á góðum batavegi eftir heimsókn á heilsu-viðgerðarstofnun í höfuðborginni. Löndun lauk  s.l. laugardagskvöld og stutt var á síldarmiðin og hefur gengið með ágætum að veiða síldina og nokkur tonn af makríl svona rétt til að ljúka endanlega þeim 4000 tonnum sem höfðingjarnir í úthlutunarnefndinni létu okkur í té  fyrir að koma sem allra mestu í manneldis-umbúðir árið 2009 þegar flestir kepptust við að moka makrílnum í bræðslu og eru svo verðlaunaðir ár hvert síðan með vænni úthlutun fyrir dugnaðinn og metnaðinn að gera sem mest verðmæti úr hinum eftirsótta makríl.  Enski boltinn rúllaði í dag, samt rúlluðu ekki allir boltar á rétta staði!! allavega ekki sá sem poolara-GARMARNIR misstu í markið hjá sér, og virtust sumir taka þetta nærri sér og voru aðeins með hálfan huga við vinnuna fyrst á eftir en verða vonandi heils-hugar eftir sunnudagssteikina á morgun!!?? Aðrir boltar enduðu oftast í réttu marki.   Við stefnum að löndun á morgun, erum að ljúka vinnslu hér á Norðfjarðarflóa  svo landstímið verður stutt ef að líkum lætur.
Vertu varkár gagnvart þöglum manni og hundi sem geltir.
Kv / Seán
Jæja jæja komið nú sæl.   Aflabrögðin hafa verið með ágætum hjá okkur erum nú þegar búnir að hálffylla hjá okkur frystilestina og með sama framhaldi búnir að fylla seinnipart föstudags. Heyrst hefur á göngunum að löndun sé fyrirhuguð næstkomandi laugardag.
Sá fáheyrði atburður átti sér stað hjá okkur í dag að skipt var um skipstjóra í miðjum túr. Farið var inn á Vopnafjörð og skipstjóranum siglt í land á litla Hákoni og komið til baka með annan skipstjóra. Almenn ánægja er hér um borð með þetta nýja skiptifyrirkomulag því nú geta menn bara skipt hvort heldur sem þeir eru sjósprungnir eða landsprungnir, í upphafi túrs, í miðjum túr eða bara í lok túrs.
Gullkorn dagsins er: "Einn er vegur allra inn í lífið og söm er leiðin út."
Nóg komið hjá Múffa í dag.
Sæl verið þið.
Lönduðum í Neskaupstað síðastliðin föstudag um 700 t af heilfrystri síld. Fórum út rétt um miðnættið og kláruðum að vinna upp nestið úr síðasta túr. Köstuðum í gærmorgun fengum smá skaufa seinnipartinn í gær. Fengum svo í 3-lestarnar í nótt þannig að það er bara alveg ágætis gangur í þessu hjá okkur. Sennilega verður hækkað um gat í kvöld.
Mannskapurinn misánægður eftir knattspyrnuúrslit helgarinnar. Poolararnir eru farnir að tala um einhvern bikar sem þá hefur víst dreymt um í áratugi.   Ekki eru allir United karlarnir ánægðir með úrslit dagsins, sumir tala um að sigurinn hefði mátt vera minni. Smá hræðsla hefur nefnilega gripið um sig á vaktinni. Spurning hvort menn fá einhvern kvöldmat eða hvort það verði nokkur ís á borðum í kvöld. En eins og flestir vita þá eru brytarnir okkar miklir Arsenal menn. Hef nú samt enga trú á því að snillingurinn í eldhúsinu láti þessi úrslit slá sig út af laginu.
Gullkornið að þessu sinni er: "Það besta við að vera frægur, er að þegar maður er leiðinlegur þá halda allir aðrir að það sé þeim að kenna."
Nóg í bili Múffi kveður.
Sælt veri fólkið. Það er búið að vera rífandi gangur í þessu hjá okkur þennan túrinn. Erum komnir með góð 600 t í frystinn og til stendur að landa í Neskaupstað á morgun , föstudag.
Fórum í morgun inn á Eskifjörð og settum trollið í land þar til yfirferðar. Þar fengum við líka heimsókn frá gullfallegri rússneskri eftirlitskonu sem kom um borð og skoðaði hjá okkur vinnsluna. Mikið augnakonfekt þar á ferðinni og voru þetta nokkuð stífar tvær klukkustundir ,fyrir suma, á  meðan hún var um borð.
Mjög miklar líkur eru á því að Oddgeirsmótið í golfi verði haldið í þessari inniveru.
Gullkornið að þessu sinni er: "Hugsanir konunnar eru eins og kvikasilfur, en hjartað eins og vax."
Nóg í bili Múffi kveður.
Sælt veri fólkið.
Lönduðum í Neskaupstað síðastliðin fimmtudag um 700 t af frosinni afurð. Fórum út aftur um kvöldið og dýfðum í um nóttina og fengum -  afla um borð upp úr hádeginu daginn eftir. Hífðum svo aftur um miðnættið í gær og fengum þá í 2-lestarnar. Síldin er heilfryst þessa dagana til að drýgja kvótann. Liggjum nú á meltunni og frystum eins enginn sé morgundagurinn.
"Poooolararnir" um borð eru sérlega   hamingjusamir í dag eftir sigur þeirra manna á Arsenal. Heyrðust strax raddir um að Liverpool mundi klárlega vera í toppslagnum í vetur. Hver veit?
Hinu árlega Oddgeirsmóti í golfi var víst frestað í síðustu inniveru vegna anna hjá styrktaraðilum. Vonandi verður mótið haldið í næstu inniveru þrátt fyrir annasama daga hjá styrktaraðilum.
Gullkornið er að þessu sinni:"Stórar sálir hafa vilja, veikar sálir eiga sér óskir."
Múffi biður að heilsa.
Jæja gott fólk  það eru  bara góðar fréttir af okkur hér um borð.
Búnir að veiða þennan litla makrílkvóta  sem okkur var úthlutað þetta árið. Erum núna að kroppa í síldina og er hún  að mestu heilfryst til að nýta kvótann sem best. Erum komnir með um 500 t í frystinn hjá okkur og sennilega verður landað í Neskaupstað á fimmtudaginn.
Ráðgert er að halda hið árlega Oddgeirsmót í golfi í næsta löndunarstoppi á golfvellinum á Norðfirði. Mót þetta er haldið til minningar um Oddgeir Jóhannsson heitin fyrrum skipstjóra hér um borð.
Hér um borð hefur verið ákveðin tilraun í gangi með vaktafyrirkomulag síðan um miðjan júní. Skipt var af hefðbundnum 6 og 6 vöktum yfir á 8 og 8 vaktir. Ákveðið var á stormasömum fundi að prófa þetta fyrirkomulag í tvo mánuði og kjósa svo um hvorar vaktirnar yrðu staðnar. Kosningunni lauk svo í gær og urðu úrslitin þau að 8 og 8 fyrirkomulagið varð ofan á.  37 gild atkvæði 31 með 8-8 og 6 með 6-6. Vonum við  að vaktadeilunni sé nú lokið hér um borð og menn gangi sáttir frá borði og  enginn stökkvi af vagninum vegna þessa.
Gullkorn dagsins er eftirfarandi:"Að ganga í hjónaband þýðir að helminga réttindi sín og tvöfalda skyldurnar."
Múffi kveður að sinni.
Sæl aftur! þetta fer frekar hægt af stað með fréttir héðan, annars eru þær allar á fésbókinni, trúi ég?!  Við höfum haldið okkur Austur og  Aust-Suð-Austur frá Neskaupstað, svæðin kallast Rauðatorg,  Litladýpi og jafnvel Rósagarður  stutt frá miðlínu við Færeyjar um tíma. Höfum fengið 100 og  góð 100 tonn í hali yfirleitt með þó smá undantekningum, talsvert meiri makríl en  síld  í flestum tilfellum. Búið að frysta um 460 tonn svo menn vonast eftir að löndun geti orðið í síðasta lagi n.k. föstudag, ef fram heldur sem horfir. Veðrið hefur verið ágætt þoka og súld nokkra daga og alskýjað flesta hina, sólin varla sést, en vindur mest 12 -14 m/sek , helst af norðri,  ágætis hringur í dag og nánast logn..  Fótboltabullurnar eru að vakna úr dvala sumarsins og búnir að finna réttu rásirnar á nýrri sjónvarpskúlu sem við fengum í síðustu inniveru, sumir voru orðir langeygir eftir stöðugu sjónvarpssambandi síðustu túra svo flest verður til reiðu þegar enska bulluvertíðin hefst.                   læt þetta duga  að sinni
Kv/ Seán
Lögin eru svipuð og köngulóarvefur: stóru flugurnar rífa hann, en smáflugurnar festa sig í honum.
Sælir allir sem hafa komið hér við en aðeins orðið vitni að lokum loðnuvertíðar. Farið var frá Reykjavík að kvöldi 6 júní s.l.. og veiðar hófust 3 eða 4 dögum síðar, höfum þegar landað 3 frystiförmum og hófum þessa veiðiferð s.l. þriðjudagskvöld, erum ca Austur af Gerpi  milli                9° og 10° Wl, veiðin hefur gengið ágætlega, meirihluti aflans síld en 10 - 20 % makríll.  Veðrið hefur verið ágætt ekki sést til sólar það sem af er  en þungbúið og úrkomuvottur af og til og hægviðri.  Ekki til að kvarta yfir en þó gengur alla jafna betur að ná síld og makríl upp við yfirborð þegar slétt er og sól, en hefur samt gengið vel þessa daga enda brúarkarlarnir úthvíldir eftir frí frá miðjum mars, svo búnaðurinn leikur í höndum þeirra og haus sem aldrei fyrr, ætlaði að skrifa alltaf fyrr!!!  Vinnslan gengur ágætlega og svo höfum við eftirlitsmann frá fiskistofu sem messar yfir öllu reglulega, svona er nú sagan í dag,  vonandi verður skemmra í næstu klausu hér en 4 mánuðir.
Að gera 20 menn ástfangna af sér  er ekkert!! en að halda einum ástföngnum í 20 ár, það er list******
Kv / Seán
Jæja gott fólk þá er þessari loðnuvertíð að ljúka, tókum síðasta kastið rétt út af Dritvík eftir hádegið í dag.  Nú er bara eftir að klára að fylla á frystilestina en í hana eru komin rúm 400 T. Ættum að vera búnir að fylla hana á mánudaginn.  Þar sem lítill sem enginn kolmunnakvóti var gefinn út þetta árið þá lítur út fyrir að skipið verði bundið við bryggju þar til veiðar hefjast í  norsk-íslenska síldarstofninum.
Annars eru karlarnir um borð bara nokkuð brattir. United karlarnir farnir að ná upp fyrri rembingsstuðli fyrir leikinn sem verður í dag gegn Arsenal. Voru frekar framlágir eftir að hafa tapað tveimur síðustu leikjum í deildinni gegn hinu ágæta Chelsea liði og neðri deildar liðinu Liverpool. Vona bara þeirra vegna að Arsenal fari ekki illa með þá í dag því þá má búast við að þörf verði á að fá áfallateymi um borð svo menn nái nú að klára vertíðina með bros á vör.
Gullkorn dagsins er:"Vinsemd er eina sementið, sem mun halda heiminum saman."
Múffi kveður að sinni.
Sælt veri fólkið, af okkur er allt þokkalegt að frétta nema hvað það gengur hálfilla að athafna sig við veiðarnar þessa dagana vegna stöðugrar ótíðar.
Byrjuðum túrinn á því að rífa  nótina og urðum þess vegna að sigla inn í Helguvík og setja hana í land þar. Fengum að láni nót sem er að vísu töluvert minni en sú er rifnaði. Sumir segja reyndar að það sé bara betra því þá eru skammtarnir passlegri.
Erum komnir með rúm 250 T í frystinn hjá okkur og svo erum við með eitthvað af hrognaloðnu sem væntanlega fer í kreistingu í Helguvík í nótt eða á morgun. Fengum í 2-lesarnar í einu kasti seinnipartinn í dag og ættum þá að hafa eitthvað fyrir vinnsluna næsta sólahringinn.
Flestir karlarnir hérna um borð hafa það bara þokkalegt þessa dagana nema þá kannski helst  Man. United stuðningsmennirnir. Þeir eru alveg miður sín eftir leik sem lið þeirra lék síðastliðið þriðjudagskvöld á móti hinu ágæta liði Chelsea þar sem leikar fóru á þann veg að þeirra lið tapaði 2-1. Sérstaklega er  United-maður nr. 1 hér um borð með ýmsar samsæriskenningar varðandi dómgæsluna í leiknum. Hann er búinn að komast að því að amma dómarans sem dæmdi leikinn hafi  átt víngott við föðurbróðir sir Alex Fergusonar í heimstyrjöldinni síðari og átt með honum barn sem föðurbróðirinn vildi ekkert kannast við og að dómgæslan hafi verið einskonar hefnd vegna vangoldinna meðlagsgreiðslna. Ekki er nú öll vitleysan eins. Svona geta nú samsæriskenningarnar orðið þegar menn ferðast mikið um veraldarvefinn.
Gullkorn dagsins er að þessu sinni: "Það eru tvennskonar menn, sem þú skyldir  aldrei eiga nein peningaviðskipti við; það eru vinir þínir og óvinir þínir."
Múffi kveður að sinni.
Sæl gott fólk, veiðar og vinnsla hefur gengið ágætlega frá því  við komum á miðin s.l. þriðjudag, veiðisvæðið verið suður og suð-vestur af Dritvík á Snæfellsnesi, 10 sm og nær. Lönduðum í Helguvík í hrognatöku s.l.fimmtudagskvöld og köstuðum svo 2x í gærmorgun og uppskárum 700 tonn, Gauji er ekkert að taka neina smáslatta, hefur verið mjög sannfærandi við veiðarnar það sem af er loðnuvertíðar. Færðum okkur suður að Garðskaga síðdegis í gær og höfum verið þar í skjóli fyrir SW 10 - 20 m/sec  og vonumst til að landa i hrognatöku á morgun  í Helguvík, þegar frystilestin er orðin full, síðan er áætlað að landa frosnu á mánudag í Rvk,   held þetta sleppi að sinni,
Kv / Seán
Sá sem reynir að lítilsvirða aðra, verður aldrei mikill sjálfur. jafnvel ekki með sjálfum sér!!!
Sæl öll og smá afsökun v / hversu stopult er skrifað hér, er ekki flest fréttnæmt á fésbók eða öðru því um líku? og nútímalegra en svona fréttaflutnings-máti???  Við lukum síðustu veiðiferð með löndun á Nes þann 14 febrúar, veiðum lauk við Vestmannaeyjar og svo var skíta-brælu ferðalag austur, 27 tíma um það bil og ekki hægt að halda uppi vinnslu síðustu 8 tímana en vinnsluliðið gerði vel og rúmlega það að halda út þar til. En brælan sú er búin og að mestu gleymd.  Hófum veiðar stutt vestur af Garðskaga  að kvöldi þess 15,2 og höfum færst norður og inn á Faxaflóa  10 - 15 sm NA af Garðskaga í gær og dag, og verið ágæt veiði  fengum milli 400 og 500 tonna kast í dag og erum að flokka og frysta kvenloðnu sem væntanlega selst á góðu verði til japsanna,!! erum með tvo slíka um borð til að messa yfir réttu loðnunum og vonandi þurfa þeir að borga sanngjarnt verð fyrir kinaukandi  munaðar-vöru!!!. Lítið frekar til að tíunda að þessu sinni.               Líkast til bræðslulöndun fyrir helgi eða í byrjun hennar í Helguvík.!!!???
Kv / Seán
Gallinn er sá í heimi hér, að fíflin eru handviss, en gáfaðir menn fullir efa.
Sæl enn og aftur gott fólk!!?.  Við lönduðum á Neskaupstað í gær eða réttara skrifað löndunarkarlarnir lönduðu!!. 700 t + af frosnu og  um 200 t  í bræðslu. Komum svo á miðin milli kl,7 og 8 í morgun og tókum eitt kast sem gaf 40 tonn  svo var lítið að sjá og ekkert frekar aðhafst við veiðar síðan  var vaxandi vindur og bræla síðdegis og verður að öllum líkindum til morguns. Annars allt bærilegt og allgott, nema verulega meiri líkur á hnökrum í vinnslunni þegar svona skakstur er og stamp.             gott en snubbótt að sinni!!
Kv / Seán
Margur um hug sér mæla kann!!